Árið 1703 voru 652
íbúar á Eyrarbakka og Stokkseyri sem þá var einn hreppur. Þar af voru bændur og
hjáleigumenn 70 talsins, en ómagar og þurfalingar 156. Þannig voru
hlutfallslega margir á sveitastyrk frameftir öldinni. Tómthúsfólk, eða
Þurrabúðarmenn var sá hópur landlausra
húsmanna kallaður sem áttu lítið annað en hróflatildrið sem það hlóð úr grjóti
og torfi með leyfi landeigenda og lifði mestmegnis af
sveitastyrknum, ölmusu og öðru því sem til féll af úr hendi þeirra efnameiri.
Árið 1756 bjuggu í Skúmstaðahverfi Ólafur Jónsson tómthúsmaður við heilsulasna
konu og kröpp kjör. Þar bjó einnig Aldís Þorkellsdóttir við tómthús og eitt
barn. Margrét Oddsdóttir tómthúskona var þá háöldruð og bjó ásamt vanfæri
dóttur í tómthúsi. Jón Brandsson var einnig tómthúsmaður í Skúmstaðahverfi,
ásamt konu og tveim börnum. Tómthúsmenn í Háeyrarhverfi voru á þessum tíma, þau
Erlendur Þórðarsson með konu og tvö börn. Jón Ólafsson var sagður stór og
sterkur, en hann bjó þar í tómthúsi
ásamt konu sinni og tveim börnum. Þorsteinn Einarsson var þá áttræður og bjó í
tómthúsi með konu sinni og bróðurbarni hennar. Í Hraunshverfi bjuggu við
tómthús, Jón Jónsson smiður kona hans og fjögur börn. Jón dauði svokallaður bjó
þar í tómthúsi með konu og tvö börn. Þá voru þeir Bauga-Guðmundur og Páll
Hafliðason taldir letingjar mestir hér um slóðir. Síðasti tómthúsmaðurinn á
Bakknanum var Berþór Jónsson (1875-1952) eða Bergur dáti eins og hann var
kallaður, en hann bjó að Grímsstöðum.
A blog about life and environment of the oldest village in Iceland + anything Icelandic
Thursday, April 20, 2017
Nolsoy ferst við Eyrarbakka
Tvær Færeyskar skútur, sem voru að veiðum hér
við land, fórust í stormi 7. mars 1934 með samtals 43 mönnum. Voru það
skúturnar „Neptun“ frá Vestmanhavn og „ Nolsoy“ frá Þórshöfn. Þann 31. maí það
ár rak lík hjá Stóra-Hrauni á Eyrarbakka og var talið að það hafi verið af
matsveininum á kútter „Nolsoy“. Likið
var óþekkjanlegt er það fannst, en
trúlofunarhringur, sem af tilviljun hafði tollað á fingri hins
látna, var sendur til Færeyja og þektist. Hin látni hét Bernhard
Henriksen og var frá Sandvági í Færeyjum. Hinn 21. maí 1936 kom minnisvarði með
m/s. „Dronning Alexandrine“, sem Færeyingar sendu og láta átti á leiði hans, en
líkið var jarðsett i Eyrarbakkakirkjugarði og var vandað til jarðarfararinnar eins og kostur var á. Með
„Nolsoy“ fórust alls 20 menn, bræður margir og feðgar, og eru nöfn þeirra
allra rituð á steininn, og
eftirfarandi erindi á undirstöðu
hans:
Mugu
enn við sorg vit siga
kærum
vinum her farval.
Góðandagin gleðiliga
tó í himli ljóða skal.
Auk Færeyinga, átti þáverandi sendiherra Dana, Fontenay og consul Jens Zimsen, sinn þátt í að minnismerkinu yrði hingað
komið, og annaði Zimsen bæði flutning austur og sá
um, að því var komið fyrir á gröf
Bernhards Henriksens og var gengið frá því í Eyrarbakkakirkjugarði þann 3. júní 1936.
Auk Bernhards fórust með kútter Nolsoy: J.
Henriksen, H.D. Hansen, V. Hansen, E. Hansen, M.Hansen, A. Danberg, J. Olsen, M. Petersen, P. Poulsen,
J.P. Petersen, M. Johansen, H. Leidesgaard, U.A. Johansen, M. Poulsen, J.G.
Petersen, O.J. Jakopsen.
Heimild: Morgunbl.138 tbl 1934. Brot úr sögu
Mykinesar
Uppnefni fyrr á tíð
Það hefur löngum tíðkast hér við ströndina sem
og víðar að gefa mönnum viðurnefni og eða gælunöfn og jafnvel stundum uppnefni.
Sumir eru kenndir við húsin, starfið, mæður, maka eða önnur einkenni. Þannig
voru menn þekktir sem t.d. Siggi-skó, Jón-kaldi, Jón-halti, Gunnsi í
Gistihúsinu, Sæmi á Sandi, Kalli á Borg, Bjadda á Sæfelli, Tóta Kristins, Inga
Lalla, Reinsi Bö, o.s.fr.v. Til forna þótti mikil upphefð í viðurnefnum eins og
alkunna er, t.d. Skalla-Grímur, Eiríkur-rauði o.s.frv. En allt frá
þjóðveldisöld hafa nafngiftir af þessum toga verið bannaðar samkvæmt Íslenskum
lögum. Um það mál segir svo í Grágás: „Ef maður gefur manni nafn annað en hann
eigi áður, og varðar það fjörbaugsgarð,(3 ára útlegð) ef hinn vill reiðast við.
Á héraðsþingi sem haldið var á Stokkseyri 19.
júní 1704 kom upp slíkt mál. Þannig
hafði sr. Halldór Torfason verið kallaður Brúsi,
en kona hans Þuríður Sæmundsdóttir, kölluð Lúpa;
lögréttumaðurinn Jón Gíslason nefndur Harðhaus;
lögréttumaðurinn Brynjólfur Hannesson kallaður Stúfur; Kvinna Jóns Guðmundssonar í Hólum, Guðný Sigurðardóttir, Langatrjóna; Þorlákur Bergsson á Hrauni
Snarkjaftur; Helga Benediktsdóttir á
Hrauni Ígrá; Jón Guðmundsson á
Skipum Rosi; hans kvinna, Ingiríður
Magnúsdóttir, Svingla; hans sonur,
Hafliði, Stóri-Blesi; hans sonur
annar, Páll, Minnavíti; Sigurður
Bergsson á Hrauni Merarson; kona
lögréttumannsins Þorsteins Eyjólfssonar, Svanhildur Sigurðardóttir, Lóðabytta; kvinna Þorláks Bergssonar á
Hrauni, Guðný Þórðardóttir, Langvía;
kvinna Sigurðar Jónssonar í Einarshöfn, Ingunn Brynjólfsdóttir,Ígrá.
Þeir sem voru kallaðir fyrir þingið vegna
þessara uppnefna voru: Gísli Pálsson umferðardrengur í Stokkseyrarhreppi 19 ára, Ófeigur Jónsson í Skúmsstaðahverfi,
Kári Jónsson í Einarshöfn, Brandur Sveinsson í Skúmsstaðahverfi, (Jón
Eyjólfsson í Stokkseyrarhverfi, var fjarverandi) og Ormur Þórðarson í
Traðarholti, en þeir neituðu að hafa fundið upp þessi viðurnefni. En
fyrrnefndur Gísli Pálsson sagðist hafa heyrt úti á Eyrarbakka í nálægð
kaupmannanna beggja, Páls Christianssonar Birck og Rasmusar Hanssonar Munch,
ásamt velbyrðugs herra amtmannsins fullmegtugs, Seigr Pauls Beyer, framsagt
hafa eftir þeirra spurn og eftirleitni, að yfirkaupmaðurinn Páll Christiansson
hefði verið kallaður Ólöfarstreðill,
en undirkaupmaðurinn Rasmus Munch Halldórustreðill.
Frambar þá Gísli opinberlega, að haustið áður, 1703, þá Eyrarbakkaskip hafi
verið afsiglt, hafi Kári Jónsson, Ófeigur Jónsson, Brandur Sveinsson og hann
sjálfur verið allir til samans við stofugluggann á Skúmsstöðum, og sagðist hann þá heyrt hafa, að þeir hafi þar um hönd
haft nafnagiftur nokkrar af þeim, sem hér eru nefndar.
Það var
sameiginleg ályktun dómsmanna,( Vigfús Hannesson mppr. Jón Gíslason m. e. h.
Þorsteinn Eyjólfsson e. h. Brynjólfur Hannesson m. e. h. Jón Guðmundsson m. e.
h. Halldór Þórðarson e. h. Guðmundur Finnbogason e. h.) að þessi þingmanna
rómur sé með eiði staðfestur á þann máta, að tveir sverji, en átta sanni, að
svo hafi þeir heyrt, en viti ei, hvort satt sé, eftir 25. Cap. Mannhelgis.
(Jónsbók).
Brynjólfur Jónsson og Sturlaugur Ólafsson,
gerðu eið: „Til þess legg ég Brynjólfur Jónsson og ég Sturlaugur Ólafsson hönd
á helga bók og það segi ég guði almáttugum, að ég hef heyrt þessum mönnum hér í
Stokkseyrarhrepp eignað, að upp með nafnagiftur komið hefðu: Gísli Pálsson
umferðardrengur í Stokkseyrarhrepp, Ófeigur Jónsson í Skúmsstaðahverfi, Kári
Jónsson í Einarshöfn, Brandur Sveinsson í Skúmsstaðahverfi, Jón Eyjólfsson í
Stokkseyrarhverfi og Ormur Þórðarson í Traðarholti, en ei veit eg, hvað satt
er. Og að so stöfuðum eiði sé mér guð svo hollur sem ég satt segi, en gramur,
ef eg lýg". Þennan eið sönnuðu átta menn, nefnilega: Jón Nikulásson, Jón
Arnoddsson, Erlendur Benteinsson, Jón Magnússon, Magnús Ólafsson, Bjarni
Jónsson, Þorkell Jónsson og Ásgrímur Eyvindsson.
Fengu hinir eiðvotta og höfðu 6 vikur til að
halda eiðinn: Þessir menn eru nefndir
Ófeigi Jónssyni til eiðvættis: Bjarni Jónsson í Háeyrarhverfi, Snorri
Nikulásson í Nesi, Einar Jónsson á Skúmsstöðum og Gísli Gunnarsson á Hrauni.
Hafi Ófeigur tvo af þessum, sé sjálfur þriðji, og tvo fangavotta. — Kára
Jónssyni eru þessir menn til eiðvættis nefndir: Arnór Gíslason í Einarshöfn,
Hinrik Vigfússon í Einarshöfn, Sigurður Björnsson í Skúmsstaðahverfi og Bárður
Guðmundsson á Háeyri. — Ormi Þórðarsyni í Traðarholti eru nefndir þessir menn
til eiðvættis: Páll Jónsson á Skipum, Bergur Sturlaugsson á Kotsleysu, Jón
Þorkelsson í Stokkseyrarseli og Helgi Jónsson í Hraunshverfi. — Brandi
Sveinssyni eru þessir menn til eiðvættis nef ndir: Kolbeinn Jónsson á
Baugsstöðum, Vigfús Þórðarson í Traðarholti, Ásbjörn Sighvatsson í
Skúmsstaðahverfi og Árni Jónsson á Kalastöðum, hafi tvo af þessum, sjálfur hinn
þriðji og tvo fangavotta (svo sem hinum hér fyrrskrifuðum mönnum er tilsagt að
gjöra), þá hann sína frómleiks vitnisburði fengið hefur hjá heiðurlegum sr.
Snorra, sem fyrr er á minnst.
Heimild: Blanda 1944/Guðni Jónsson.
Öldin teit, það frétti fróð....
Undir lok 18.
aldar, þá er fyrrum stýrimaður, Niels Lambertsen var orðinn kaupmaður á
Eyrarbakka voru hjá honum tveir búðarsveinar, þeir Sveinn Sívertsen og Sigurður
stútent Sívertsen (Magnússon). Christine
var kona Lambertsens, er jafnan var kölluð „Stína“ af heimamönnum. Sonur þeirra
var Lambertsen yngri, er síðar var með verslunina. Skip hans „Charlotte Sopie“
kom hvert sumar og venjulega fór Lambertsen
með skipinu aftur til Kaupmannahafnar að hausti. Skildi hann konu sína
þá eftir á Bakkanum til að gæta eigna sinna.
Eitt sumarið kom
Lambertsen ekki með skipinu og var sagður liggja fyrir dauða sínum í
Kaupmannahöfn. Stína hafði átt vingott með Sveini þá er Lambertsen var utan og
sagðist nú vilja lofast honum ef svo
færi að hún yrði ekkja. Brátt varð Stína ólétt og var ráð þeirra að leyna þessu
og fá barninu sýndarforeldra. Sigurður stútent var með í ráðabruggi þessu og
leituðu þau til Einars snikkara Hannessonar á Skúmstöðum, sem hafnaði þeirra
málaleitan. Þvínæst var leitað til Snorra bónda Gizurarsonar á Hólum í Flóa og
konu hans Katrínar Eiríksdóttur og tókust með þeim samningar.
Þegar barnið var fætt fóru þau Stína og Sigurður
ríðandi að Hólum og skildu barnið þar eftir hjá þeim hjónum. Elín i Gaulverjabæ
var þá ljósmóðir í sveitinni og var hún kölluð til. Hafði
hún barnið heim með sér samkvæmt venju hennar, en áður en barnið komst aftur að
Hólum hafði málið komist upp. Dag nokkurn hafði Eiríkur snikkari komið í búðina
til Sigurðar Sívertsen og orðið missáttur
um viðskipti sín við hann. Búðin var þá full af fólki er Eiríkur lét
málið uppiskátt í bráðræði sínu.
Þegar svo var komið
varð að ráði að Sigurður stútent gengist
við barninu, en það var drengur nefndur Páll. Drengurinn fékk strax viðurnefnið
„Kúts-Páll“. Það hafði æxslast þannig að ráð Sigurðar til að koma barninu óséðu
að Hólum var að setja það í vatnskút og reið hann með það á söðli íklæddur
kvennmansklæðum en Stína reið á eftir. Er þau fóru framhjá Brattholti mættu þau
bónda þar Hákoni Þorgrímssyni og heyrðist honum barnsgrátur koma úr kútnum, en
til að verða ekki að aðhlátursefni um allar sveitir, sagði hann ekkert um
ferðamenn þessa og barnsgrátinn úr vatnskútnum fyrr en málin höfðu komist í
hámæli.
Varð þessi saga mörgum að yrkisefni og er til
a.m.k. ein vísa svohljóðandi:
Öldin teit það frétti fróð,
fyrr það vissi enginn,
að bóndakona og faktors fljóð,
fætt hafa sama drenginn.
Kúts-Páll settist
að í Gullbringusýslu og átti marga afkomendur.
Heimild: Saga
Þuríðar formanns.
Ölframleiðsla á Eyrarbakka 1926 BAKK-ÖL
Sigurður Þórarinsson frá Vegamótum á Eyrarbakka, hafði
undirbúið sig til að takast á hendur verzlunarstörf. Nám hafði hann stundað í
Flensborg, sem þá var eitt helsta menntasetur á Íslandi.
Sigurður hafði mikinn hug á að koma sér upp verzlun og hafði
í því skyni aflað sér margs konar sambanda. Reyndar var hann þegar byrjaður að
höndla, þó í smáum mæli væri. Ýmislegt var þá á döfinni og gerði Sigurður m.a.
tilraunir með þurrkun þara í bakaríinu hjá mági sínum, Andersen. Var þá um að
ræða joðvinnslu úr þara. Einhver sýnishorn mun hann þegar hafa verið búinn að
senda út.
Tilraunir með hvítölsgerð hóf Sigurður í kjallara
Vesturbúðarinnar og munu þær tilraunir hafa gefið góðan árangur. Skyldi nú
hafin ölgerð í stórum stíl. Flöskumiðar voru prentaðir og allt undirbúið sem
bezt. Hugsunin var að selja ölið á þriggja pela flöskum.
Á þessum árum var fé ekki á lausu og því var það að Sigurður
ákvað nú að róa eina vertíð enn, en það skyldi vera sú síðasta, áður en
fyrirtækið færi fyrir alvöru af stað.
Það varð orð að sönnu, að vertíðin varð sú síðasta, en það
varð heldur ekkert úr því að fyrirtækið færi af stað.
Sigurður réði sig á vélbátinn Sæfara, sem fórst á
innsiglingunni þann 5. apríl 1927, með allri áhöfn, að mörgum Eyrbekkingum
ásjáandi.
Þeir munu margir, er velt hafa því fyrir sér, hvernig á
þessum ölmiðum standi og hér hafa þeir þá svarið að nokkru, þó sjálfsagt mætti
skrifa um það lengra mál.
Ó.[skar] M.[agnússon]
(Úr blaðinu Suðurlandi, laugardaginn 25. október 1969.)
Kraftaskáldið
Bergsteinn blindi Þorvaldsson var kallaður kraftaskáld, og heldur en ekki
þótti honum góður sopinn. Eitt sinn var það, að hann kom í búðina á Eyrarbakka
og bað kaupmanninn að gefa sér í staupinu. Kaupmaður tók því fjarri, því að
hann væri alveg brenmvínslaus. Kvað hann andskotann mega eiga þann dropann, sem
hann ætti eftir af brennivíni. Ekki lagði Bergsteinn mikinn trúnað á það og
kvað vísu þessa við búðarborðið:
Eg krefst þess af
þér,
sem kaupmaðurinn
gaf þér,
þinn kölski og
fjandi
í ámuna farðu
óstjórnandi
og af henni
sviptu hverju bandi.
Brá þá svo við, að braka tók heldur óþyrmilega í brennivínstunnu kaupmanns,
svo að við var búið að bresta mundu af henni öll bönd. Þorði kaupmaður þá ekki
annað en gefa Bergsteini neðan í því og varð feginn að sleppa, áður en verra yrði
úr.
Sagt er, að þau yrðu æfilok flökkuskáldsins Bergsteins blinda, að hann kvæði
sig sjálfur drukkinn í hel eftir boði annarra, og hafi hann þá verið æfa
gamall. En með vissu vita menn það um endalykt Bergsteins, að hann dó á Eyrarbakka
út úr drykkjuskap 17. júlí 1635, og þótti þá svo ískyggilegt um dauða hans, að hann
fékk ekki kirkjuleg, heldur var hann grafinn utan kirkjugarðs á Stokkseyri.
Getur Gísli biskup Oddsson þess í bréfabók sinni, að ekkja Bergsteins hafi „klagað
sárlega" fyrir sér, að maður sinn lægi utan garðs, og hafi „séra Oddur Stephánsson
helst gengist fyrir því, að hann skyldi ekki innan kirkjugarðs grafinn
vera".
(Eftir Jóni Þorkelssyni)
Wednesday, May 27, 2015
Tuesday, May 26, 2015
Saturday, September 06, 2014
Potential disaster eruption will happen.
| Eruption north of Vatnajokull, Photo from "Mila" webcam |
If the current eruption in “Holuhraun”, moves into the glacier
"Bardarbunga" or a new eruption occurs there, it is a big chance that
this can happen: The eruption could cause an outburst flood and possibly an
explosive, ash-producing activity. In the event of a sub glacial eruption, it
is most likely that flooding would affect “Jokulsa a Fjollum”. It is also possibly
a flood coming in these rivers from the glacier Vatnajokul: Skjalfandafljot,
Kaldakvisl, Skafta and Grimsvotn.
Sunday, August 31, 2014
Eruption started in Iceland
From Civil Protection in Iceland.
Mila-WEBCAMS "Holuhraun"
A small eruption started at 0600 this morning close to the eruption that was on Saturday. Scientists on scene, estimate that the fissure goes further to the north than the previous eruption around 1,5 km. long. A lavafield of about 3 km flows to the east. Very bad weather is at the eruption site, sandstorm and windy conditions.The Civil Protection and Emergency Management is working on Alert Phase. The Icelandic Met Office has raised the Aviation colour code to red for Bárðarbunga/Holuhraun.
More eruption warning!Mila-WEBCAMS "Holuhraun"
Thursday, August 28, 2014
Two volcanoes come with risk code
From Civil Protection in Iceland.
Scientists from the Icelandic Meteorological Office and the Institute of Earth Sciences, together with representatives of the Civil Protection in Iceland, met today to discuss the on-going unrest at the Bárðarbunga volcano.
This morning, there was a flight over the Bárðarbunga area and the surface of the glacier was surveyed. No changes to the ice crevasses southeast of Bárðarbunga, that were seen yesterday evening, were observed. These crevasses (cauldrons) were likely formed due to melting at the ice bottom.
The depressions have been located southeast of the Bárðarbunga caldera, in all likelihood within the water divide of the river Jökulsá á Fjöllum. There are three circular crevasse formations, about 5 km in total length. The ice thickness in the area is 400-600 m.
The water level in Grímsvötn Lake has been surveyed and has likely risen by about 5-10 m in the last days, which corresponds to an addition of 10-30 million m3 of water in the lake. A slight increase in conductivity in Köldukvísl River was measured this morning, but the cause is yet unknown. No change has been measured in the Hágöngulón lagoon, Jökulsá River and Skjálfandi River. It is assumed, that the water from the cauldron has flowed into the Grímsvötn Lake or the river Jökulsá á Fjöllum.
The seismic activity is similar to that of the last days. Around midnight, three earthquakes of magnitude around 4 were recorded and one of magnitude 5 at 08:13 this morning, all located within the Bárðarbunga caldera.
Shortly before 08:00 this morning, there was a slight increase in seismic activity in Askja volcano. Changes in the stress field due to expansion caused by the dyke have an effect on the Askja area.
Since yesterday, the length of the dyke under Dyngjujökull has increased by 1-1.5 km to the north, which is considerably less than in the last days. The dyke has now reached the fissure system of the Askja volcano and GPS measurements indicate that the area there is greatly affected.
Scientists from the Icelandic Meteorological Office and the Institute of Earth Sciences, together with representatives of the Civil Protection in Iceland, met today to discuss the on-going unrest at the Bárðarbunga volcano.
This morning, there was a flight over the Bárðarbunga area and the surface of the glacier was surveyed. No changes to the ice crevasses southeast of Bárðarbunga, that were seen yesterday evening, were observed. These crevasses (cauldrons) were likely formed due to melting at the ice bottom.
The depressions have been located southeast of the Bárðarbunga caldera, in all likelihood within the water divide of the river Jökulsá á Fjöllum. There are three circular crevasse formations, about 5 km in total length. The ice thickness in the area is 400-600 m.
The water level in Grímsvötn Lake has been surveyed and has likely risen by about 5-10 m in the last days, which corresponds to an addition of 10-30 million m3 of water in the lake. A slight increase in conductivity in Köldukvísl River was measured this morning, but the cause is yet unknown. No change has been measured in the Hágöngulón lagoon, Jökulsá River and Skjálfandi River. It is assumed, that the water from the cauldron has flowed into the Grímsvötn Lake or the river Jökulsá á Fjöllum.
The seismic activity is similar to that of the last days. Around midnight, three earthquakes of magnitude around 4 were recorded and one of magnitude 5 at 08:13 this morning, all located within the Bárðarbunga caldera.
Shortly before 08:00 this morning, there was a slight increase in seismic activity in Askja volcano. Changes in the stress field due to expansion caused by the dyke have an effect on the Askja area.
Since yesterday, the length of the dyke under Dyngjujökull has increased by 1-1.5 km to the north, which is considerably less than in the last days. The dyke has now reached the fissure system of the Askja volcano and GPS measurements indicate that the area there is greatly affected.
Saturday, August 16, 2014
The risk of an eruption in the "Vatnajokull"
![]() |
| This map shows the earthquakes in one day. Starr does an earthquake more than 3 on a scale. |
Tremendous surge of earthquakes have been on the glacier last
day. "Civil Protection" express uncertainty level:
The National Commissioner of Police and the District
Commissioner of Police at Hvolsvöllur and Húsavík have declared a Civil
Protection Uncertainty phase due to unrest in Bárðabunga.
Saturday, June 14, 2014
Orrusta
| The Vikings will be quarreling and fighting. |
| Angry Valkyrie and draws a sword |
| Hard fight |
| defence |
| Submission and peace |
Subscribe to:
Posts (Atom)


