Thursday, April 20, 2017

Einar og Skrímslið

Einar Guðmundsson hét maður er átti heima að Stóra-Hrauni. Eitt sinn að morgni dags gekk hann til sjávar austur að Stokkseyri og sá hann þá til skrímslis sem var með tvo hnúða á baki og á stærð við húskofa. Öslaði skrímsli þetta í tjörnunum austan við Hraunsá en stefndi brátt til sjávar mót Einari. Þegar ferlíki þetta hafði nálgast hann nokkuð, brá Einar á það ráð að taka til fótanna og linnti ekki hlaupunum fyrr en heim var komið. Sá hann ekki meir af skrímsli þessu.

No comments: