Friday, April 21, 2017

Knarrarósviti (Baugstaðaviti)

Loftstaðahóll var talinn heppilegasta vitastæðið á standlengjunni milli Ölfusár og Þjórsár. En  þegar farið  var að  bora í hólinn,  reyndist  þar ekki  fáanleg nógu traust  undirstaða og  var  þá horfið að því  ráði, að  reisa vitann við Knararós á Baugstaða kampi. Var byrjað á byggingunni í  september 1938 og lokið við að koma henni upp í nóv.  s ama  ár. Sumarið 1939 var unnið að því að setja ljóstæki í vit ann og ganga frá  honum að öðru leyti. —  Þann 31. ágúst  það sama ár var vitinn vígður og tók ann samdægurs til starfa.

Vitinn stendur 4 m yfir sjávarmáli, en hæð hans frá jörðu er 26 metrar. Hann er byggður úr  járnbentri  steinsteypu. Veggirnir eru mjög  þunnir, m.v. vita erlendis, eða 20 cm. Að utan er hann  pússaður með  kvarsi. Í gluggunum var allsstaðar svokallað gangstéttargler sem var  grópað í veggina. Smíði vitans var meðal  annars miðað við  það, að viðhald  hans yrði sem ódýrast, en  jafnframt reynt að  hafa  hann  rammgeran og var því enginn viður notaður nema í stigann. Linsan í ljóstæki Knararós vita er 500 mm og  upphaflega var 50 l. gasbrennari til ljósgjafar og fékst með því 6100  kerta Ijósmagn. Ljóssvið vitans var þá 16 mílur. Fyrsti vitavörðurinn var Páll Gunnarsson bóndi á Baugsstöðum og þurfti hann að sinna vitanum annan hvern dag. Teikninguna af vitan um gerði Axel Sveinsson verkfræðingur, en verkstjóri  var Sigurður Pétursson frá Sauðárkróki.

No comments: