Mennirnir sem fórust með Víði VE
|
Vestmannaeyjar |
Sunnudagsmorguninn
6. f ebr. 1938 reru
flestir bátar úr Eyjum. Um k l.
10 skall á versta
veður og rofaði ekki til fyrr en kl. hálf fjögur e.h. Í þessu veðri
fórst „ Víðir" úr
Vestmannaeyjum, með 5 manna
áhöfn. Skipverjar voru
allir ungir menn og
ókvæntir, en meðal þeirra voru tveir Eyrbekkingar. Formaðurinn var
Gunnar Guðjónsson úr Vestmannaeyjum. Vélstjóri var bróðir hans, Gísli Guðjónsson. Móðir þeirra,
Halla Guðmundsdóttir, hafði þá misst fjóra syni sína í
sjóinn. Hásetar á „
Víði" voru Jón Markússon úr
Eyjum. Jón Árni Bjarnason frá
Tjörn á Eyrarbakka og Hallur Þorleifsson frá Eyrarbakka.
Ægir 1938
No comments:
Post a Comment